Sunday, 1 May 2011

Litaleiðrétting og Effektar

Eftir langantíma af litaleiðréttingu án þess að vera fullkomnlega sáttur þá kom Hákon með þá hugmynd að hafa myndina í svona semi-sepia stíl svo ég prófaði það og er mjög sátur við niðurstöðuna.
Hér sjáið þið útkomuna.
Nú kom að því að gera augu opnast effect með after effects.  Eftir að hafa leitað mjög lengi á netinu eftir leiðbeiningum án þess að finna neitt þá ákvað ég bara að prófa mig áfram. 
Eftir nokkra tíma þá tók ég eftir því að þetta er ekki eins flókið og ég hélt að það myndi vera og ég var kominn með effectinn sem ég vildi.  Eftir nokkrar fínstillingar þá henti ég klippunni inn í premiere tímalínuna og allt var tilbúið.

Klippingar


Þá er maður búinn að eyða mest öllum frítímanum sínum í að klippa og taka upp upplesturinn á ljóðinu nokkrum sinnum til að vera alveg sáttur.  En myndin stefnir að því að verða rétt undir 5 mínútur á lengd.  Næsta á Dagskrá er svo að litaleiðrétta og gera nokkra effecta í After Effects.

Þriðju upptökur

Þessar voru þriðju, seinustu og erfiðustu upptökurnar.  Ástæðan fyrir því er að Ísland er mjög leiðinlegt land til að taka upp kvikmynd á þar sem að það er mjög erfitt að halda í það veður sem maður þarf.  Margsinnis fór ég út vegna þess að það var perfect veðurskilyrði sem ég þurfti og síðan um leið og maður var kominn á staðinn þá kom sól og blíða (mig vantaði semsagt snjóstorm).  Þetta gerðist svona 8 sinnum og eitt skiptið þá meira að segja ætlaði ég að elta veðrið en það endaði bara með háum bensínreikningi og engum efni.

Vúhúúú!!! það kom rétt veður fyrir upptökurnar og það entist í dágóðan tíma.  Í þetta skiptið þá vissi ég að það eru fáir sem eru tilbúnir að stoppa því sem þau eru að gera til að hjálpa manni.  En ég get oftast treyst Láru til að stökkva í upptökur snöggvast sem var gott þrátt fyrir það að það dugði ekki vegna þess að við bæði voru að fara að leika og þar af leiðandi þurftum við þriðja aðila.  Svo ég fór að hringja inn greiða og sure enough þá var vinur minn Davíð tilbúinn að hjálpa, en hann var nú ekki alveg viss hvað hann var að koma sér í að þurfa að vaða út í snjóstorm með upptökutæki.

Upptökurnar byrjuðu skemmtilega þar sem að við náðum að fest bílinn á leiðinni að upptökustaðnum.  Við stukkum þá bara út litum á það sem seinni tíma vandamál og röltuðum restina af leiðinni.
Það sem við stefndum að því að taka upp þetta skiptið var allt drauma atriðið og loka skotið í myndinni.
Við reyndum að drífa okkur eins mikið og við gátum, án þess að gera fljótfærnisvillur auðvitað,  þar sem að það var skítakuldi (fyrirgefið orðbragðið) en eftir cirka 2 tíma var allt komið og við gátum einbeitt okkur að því að losa bílinn og koma okkur heim í hlýjuna.

Þar með var upptökum lokið og maður gat byrjað að klippa.

Seinni upptökur

Í seinni upptökum þá vann ég eins og ég geri oftast best og það er einn.  Í þetta skiptið var ég að taka upp senu þar sem ég vakna úr draumi.
Vegna þess að ég hafði rekist á það áður að hækka iso-ið of mikið að þá náði ég í spegil sem ég kom fyrir til að spegla dagsljósinu frá glugganum og á mig.  Ég vildi ekki nota ljós því að þau náðu ekki þessari birtu sem að dagsljósið gaf.  Með því að gera þetta þá náði ég akkurat rétta ljósmagninu sem ég þurfti til að láta skotin líta vel út.

Fyrstu upptökur

Ég að undirbúa skot
Fyrstu almennilegu upptökurnar byrjuðu um kvöldið 15.03 en þá náðum við að taka upp fyrstu tvö erindin af ljóðinu.  Ég og Lára vorum bara tvö að sjá um upptökurnar og leikinn.  Allt gekk vel þangað til að efnið var komið í tölvuna og í ljós kom að klippurnar voru ónothæfar útaf miklu graini þar sem að iso-ið þurfti að vera svo hátt til að ná þeirri birtu sem ég þurfti.  Niðurstaðan var sú að ég þurfti að redda mér ljósnæmari linsu og reyna aftur.

Ekki löngu seinna var ég kominn með aðra linsu og þrátt fyrir það að með þessari linsu var allt zoomað í botn að þá heppnuðust upptökurnar í þetta skiptið og allt var komið á skrið.

Rammi af efni sem við tókum.