Þessar voru þriðju, seinustu og erfiðustu upptökurnar. Ástæðan fyrir því er að Ísland er mjög leiðinlegt land til að taka upp kvikmynd á þar sem að það er mjög erfitt að halda í það veður sem maður þarf. Margsinnis fór ég út vegna þess að það var perfect veðurskilyrði sem ég þurfti og síðan um leið og maður var kominn á staðinn þá kom sól og blíða (mig vantaði semsagt snjóstorm). Þetta gerðist svona 8 sinnum og eitt skiptið þá meira að segja ætlaði ég að elta veðrið en það endaði bara með háum bensínreikningi og engum efni.
Vúhúúú!!! það kom rétt veður fyrir upptökurnar og það entist í dágóðan tíma. Í þetta skiptið þá vissi ég að það eru fáir sem eru tilbúnir að stoppa því sem þau eru að gera til að hjálpa manni. En ég get oftast treyst Láru til að stökkva í upptökur snöggvast sem var gott þrátt fyrir það að það dugði ekki vegna þess að við bæði voru að fara að leika og þar af leiðandi þurftum við þriðja aðila. Svo ég fór að hringja inn greiða og sure enough þá var vinur minn Davíð tilbúinn að hjálpa, en hann var nú ekki alveg viss hvað hann var að koma sér í að þurfa að vaða út í snjóstorm með upptökutæki.
Upptökurnar byrjuðu skemmtilega þar sem að við náðum að fest bílinn á leiðinni að upptökustaðnum. Við stukkum þá bara út litum á það sem seinni tíma vandamál og röltuðum restina af leiðinni.
Það sem við stefndum að því að taka upp þetta skiptið var allt drauma atriðið og loka skotið í myndinni.
Við reyndum að drífa okkur eins mikið og við gátum, án þess að gera fljótfærnisvillur auðvitað, þar sem að það var skítakuldi (fyrirgefið orðbragðið) en eftir cirka 2 tíma var allt komið og við gátum einbeitt okkur að því að losa bílinn og koma okkur heim í hlýjuna.
Þar með var upptökum lokið og maður gat byrjað að klippa.
No comments:
Post a Comment